Signý Sigurmonsdóttir
8. aprílSigný Sigurmonsdóttir
Páskadjamm á Blönduós :D
Jæja ég held að hjartað mitt sé farið að kalla á blogg.....
Allavega þá skellti ég mér á Blönduós í gær þar sem var ball með á móti sól :D Ég varð að prófa að djamma á Blönduósi og skemmti ég mér alveg konunglega :D Það var alveg hellingur af fólki þarna, ég bjóst allavega við því að ég myndi ekki þekkja marga en svo þekkti maður bara frekar marga þarna :D Guðrún mín var auðvitað á staðnum :D og hellingur af fleiri skagfiðingum :D
En þetta var alveg þrusuball :D það sem stóð mest uppúr þessari ferð minni á Blönduós var þetta fína sirkushopp mitt til Guðrúnar en það endaði ekki betur en það að við lágum báðar á stéttinni :D frekar fyndið ;) erum núna báðar með nokkur sár ;)
En allavega þá er ég bara í páskafríi núna frá skólanum þannig ég er bara að vinna og liggja undir sæng :D Er búin að vera voðalega löt....ætlaði að vera rosa dugleg um páskana og læra fyrir bílprófið en neiii en held að ég sé búin að lesa svona 3 bls. :/ ekki mikill dugnaður í minni .
Núna sit ég bara ein hérna og hangi í tölvunni og borða páskaegg :D
Annars hef ég voða lítið að segja....ætlaði bara að segja frá blönduós ferðinni :D
Bless
20. marsSigný Sigurmonsdóttir
Kominn tími til að skella inn einu stuttu bloggi.
Núna sit ég í tölvunni að reyna að gera eitthvað lokaverkefni í KMN sem er ekki að ganga eins og ég vonaði en það er allt að koma....copy – paste af netinu :O
Það helsta sem búið er að gerast hjá mér síðustu daga er að ég átti afmæli 11 mars orðin 17 ára stór stelpa og Örvar bróðr varð 26 ára 12. mars til hamingju með það :*
Ég fékk alveg helling í afmælisgjöf þrátt fyrir háan aldur :D takk fyrir það allir :* og allir sem mundu eftir afmælinu mínu ;*
Ég var á króknum alla síðust viku eða frá 10. mars til 19. mars, það var alveg hreint yndislegt....var í starfsþjálfun á Ólafshúsi sem var bara ótrúlega fínt! Ég var samt mjög kvíðin fyrir þetta fyrst, en svo var þetta bara æði :D frábært fólk að vinna þarna, sumir alveg snargeggjaðir í hausnum :D ég fékk reyndar að heyra að ég væri með þeim rugluðust :O skil það ekki alveg :O
En helgin var góð í alla staði eða allavega flesta :) versta er að vera ekki orðin 18 ára til að komast meira á djammið með fólkinu ;D en allavega þá skemmti ég mér nokkuð vel um helgina :D elska þig alveg ótrúlega mikið :*
En 9. mars var árshátíðin hjá VMA og heppnaðist hún bara mjög vel, við á matvælabraut vorum að þjóna og mér fannst það alveg ótrúlega fínt :D var ekkert of spennt fyrir þessu!
En ballið var ekkert nema tær snilld, enda dansaði ég af mér flesta útlimi :O :D
En ég man ekki eftir neinu meira sem hægt er að segja frá, þannig ég ætla bara að halda áfram að læra :O
1. marsSigný Sigurmonsdóttir
Ég var víst búin að lofa bloggi....smá innskot
Þetta er búin að vera mjög góð vika :P frí á mánudaginn í skólanum, skóli á þriðjudag opnir dagar í gær og dag og svo skóli á morgun...fór reyndar ekkert í skólann í dag!
Kara mín farin til Rúmeníu að keppa með landsliðinu :) alltaf sama harkan í henni :* gangi þér vel :)
Fór til pabba um síðustu helgi...mjög gott sko :) lá nú bara í leti mest allan tíman, skrapp aðeins á krókinn á laugardagskvöldið!
Silja....ég tók til í eldhúsinu alveg óumbeðin ;) þetta getur maður :P
Fólk er hætt að þora í heimsókn til mín, sérstaklega þegar það á að koma inn niðri, hrætt um að fá vatnsgusu yfir sig :D haha
Foreldraboð á matvælabraut 8. mars :/ og svo árshátíð VMA 9. mars :D
Svo er stefnan sett á krókinn 10. til 18. mars :D vonandi að það verði fínt :P
Sævar átt 18 ára afmæli um daginn :) til hamingju með það ;**
Svo styttist bara í afmælið mitt og Örvars reyndar líka en mitt er milu merkilegra þar sem ég er að nálgast 17 ára aldurinn ;) er nú samt ekkert að flýta mér í sambandi við bílprófið....fínt að geyma það aðeins :)
Maður er að heyra að Auður sé bara í bóklegaprófinu í dag og verklega á mánudaginn :D gangi þér vel sæta :**
Fótboltaleikir alltaf hægri vinstir....ManU alltaf að standa sig :)
Spennandi leikur á laugardaginn :P
Mig langar að komast í fótbolta :O
Alex hættu að vera alltaf svona upptekinn :O
Nenni þessu ekki.....farin að taka til !!
Láttu þér batna Ragga ;**
22. febrúarSigný Sigurmonsdóttir
Af því að ég er lélegur bloggari þá verður þetta svona núna :Dlofa bloggi um helgina :D allt að gerast :O
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Langar þig að kyssa mig?
5. Ertu hrifinn af mér?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það?
7. Lýstu mér í einu orði?
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Nenniru að setja þetta í bloggið þitt??
16. Lokaorð??
5. febrúarSigný Sigurmonsdóttir
Ætli þetta sé ekki rétti tíminn fyrir blogg :) allt að gerast :D
Þorrablót í Hofsós um þarseinustu helgi :) nokkuð gott blót bara, geðveikt ball með Sixties á eftir :D var reyndar orðin veel þreytt eftir 46 tíma vöku :O enginn tími til að sofa :/
En þá er að segja frá því sem er að gerast :D
Grétar og Alex búnir að lita hárið dökkt :D farnir að fara í ljós og bling framundan :D tær snilld þarna á ferð, en Ragga og Gréta voru svo duglegar að lita á þeim hárið :)
Signý byrjuð í Ö2 spurning hvort maður eigi samt nokkuð að vera að drífa sig í bílprófið ? :O maður vill ekki skapa neina hættu :D
Spurning hvort maður eigi að fara að drífa sig suður ? eitthvað sem ég er búin að ætla mér lengi !
Helgin var alveg hreint ágæt :) föstudagurinn fór í það að vinna, heimsókn til Röggu og rúntur :P
Laugardagurinn fór í mikla leti, nammi át, góðan mat hjá mömmu Köru og teiti hjá Röggu :D
Sunnudagurinn toppaði samt allt.....við fórum á skauta :D Grétar flaug á hausinn :D frekar fyndið :) svo fórum ég, Alex og Grétar heim til Gréatars og horfðum á Tottenham – Man. Utd. Góður leikur :) ég og Alex vorum nú samt hálf sofandi eftir erfiða skautaferð :D svo var haldið á greifann og fengið sér eitt stykki steik :P brynja þar á eftir og svo heim, alls ekki slæmur dagur :D
En þetta var bara svona smá innskot, maður er að heyra að það á ekki að setja allt á netið, það sjá það allir :D þannig ég ætla ekkert út í smáatriði :D
Takk fyrir mig
Myndir á leiðinni.....ég lofa :D
26. janúarSigný Sigurmonsdóttir
Ótrúlegt en satt :O það er komið blogg......
Jæja ég hef ákveðið að fara að bæta mig aðeins í blogginu hérna :) hvernig lýst fólki á það :O
Er búin að breyta síðunni aðeins og bæta við, ætla að vera duglegri að taka myndir og setja inn og bæta einhverju á síðuna :D sp. hvernig það á eftir að ganga :D búin að breyta í vinum :D
Árið er ný byrjað og fyrsti mánuðurinn strax búinn :O
En annars er allt frábært að frétta hér :D skóli, vinna og vinir er það sem maður stundar mikið þessa dagana :D
Síðasta helgi var allsvakaleg...ég lærði að 5 mín. geta verið langar :D ekki allir sáttir við það :O Signý alltaf að læra eitthvað nýtt, lærði líka að það er ekki gott að hafa batteríslausan síma og margt annað :D
Þetta var samt góóóð helgi :D Alex var nokkuð hress á föstudagskvöldið, braut glasið sem hann ætlaði að skila á capone :D
Svo var maður bara skilinn eftir úti á laugardagskvöldið, greyið driver-inn minn þurfti að rúnta með mig í nokkra tíma :O ekki gott það.....var örugglega mað fyrstu kúnninn í bakaríinu á sunnudagmorguninn :D
En nóg með helgina :D
HM í handbolta er örugglega ofarlega hjá íslendingum núna :D Strákarnir að standa sig ? Var þó ekki sátt með leikinn í gær, en teiknimyndirnar björguðu þó kvöldinu hjá mér og brynju ísinn :D
Svo er það kannski bara þorrablót á morgun í Hofsós...þ.e.a.s. ef ég finn far frá Ak. Til Hofsósar á morgun eftir vinnu :) kemur bara í ljós, annars gerir maður bara eitthvað af sér hér ;D
Annars er ég bara farin :D
16. desemberSigný Sigurmonsdóttir
Náði öllu :D- Íslenska 7
- Enska 8
- Íþróttir 8
- Matreiðsla/Þjónninn 9
- Tölvur 9
- Hreinlætis- og örverufræði 9
Núna er maður bara að vinna sem mest því ég ætla að vera í jólafríi um jólin :) fer í jólafrí núna 19. des þangað til 9. jan :D þá verður farið heim í Skagafjörð og tekið því rólega og hitt alla vinina þar :D verður mjög ljúft :P
Annars bara Gleðileg Jól :)
PunktabloggSigný Sigurmonsdóttir
Afþví að ég nenni ekki að blogga þá hef ég þetta svona núna :D
Föstudagur
*Pabbi náði í mig norður á föstudagsmorguninn
*Kíkti á æfingu fyrir neistahátíðina
*Neistahátíðinni frestað
*Ég, Binni og Gísli drifum okkur á krókinn til að komast örugglega fyrir ball
*Fór til ömmu og afa í sturta og taka mig til
*Kíkti á vistina fyrir ball
*Ball með Bermuda
*Lamin með flösku
*Hitti Guðrúnu Sonju
*og Pálma…
*…Og fullt af fleira fólki
*Ógeðslegt veður eftir ball
*Fór í smá göngutúr til að dreifa huganum
*hugs…
*Fór til Gísla og Binna eftir göngutúrinn
*Sofa
Laugardagur
*Vaknaði kl. 9 takk fyrir
*Fór til ömmu og afa
*Í bakaríið til Guðrúnar
*Á vistina
*Rúntur
*Video hjá Sævari
*Rúntur
*Sofa
Sunnudagur
*Vakna
*Liggja í leti
*Akureyri
*sofa :D
Gott blogg…takk fyrir
15. októberSigný Sigurmonsdóttir
Ef ég er ekki latasti bloggarinn þá veit ég ekki hvað! En eins og venjulega nenni ég enganveginn að blogga þannig þetta verður bara stutt :PFlestir virkir dagar hjá mér eru eins, skóli, vinna, læra, brynjuís :P helgarnar skiptast svo í vinnu og að ég geri eitthvað af mér :D
Helgin 15. - 17. sept. skellti ég mér í Skagafjörðinn og fór í réttir, og á réttarball í fljótum með Sólveigu, Veigari og Friðrik. það var geðveikt ball…ekta sveitaball :D Auður lét sjá sig á balli, hef ekki hitt hana lengi því hún stakk af suður í skóla :O svo var ég bara í Hofsós hjá pabba :P
Helgin 22. - 24. sept var ég bara að vinna, þannig það var gert lítið annað en að vinna og sofa :/ maður á sér lítið líf :O
Helgin 29. - 1. okt. var góð helgi :D var í fríi á föstudeginum þannig ég fór til pabba með Agli á fimmtudeginum :D það var ljúft að komast heim :P Við Egill skruppum á krókinn á fimmtudagskvöldið og föstudagskvöldið og hittum stelpurnar, Guðrúnu, Lilju og Þórey :D það var geðveikt hafði ekki hitt þær í laaangan tíma :O ótrúlegt en satt ! Laugardagurinn fór í það að vakna snemma og fara í réttir :D það var reyndar skítakuldi úti en maður lét sig hafa það, það var alveg slatti af fólki þarnar þannig maður hitti nú alveg nokkra :D
Svo var stóra spurningin hvort maður ætti að fara á ball á Króknum á Von og Geira eða í Hofsós á Upplyftingu, við Sólveig ákváðum að fara á Krókinn. En ballið var mjög gott og var ég mjöög fegin að Geiri spilaði lítið…ég er vond að segja þetta ég veit :$
Ég var hinsvegar ekki sátt við Akureyringana sem komu á Krókinn en nenntu svo ekki á ball, helv…félagsskítar :O Komu bara í smástund fyrir utan ballið og fóru svo aftur norður :O
Svo var bara keyrt norður á sunnudeginum :P
Helgin 6.-8. okt fóru mamma og Haffi til Þýskalands. Ég var bara heima kíkti eitthvað í bæinn og svo var maður bara að hitta fólk, frekar róleg helgi.
Það gerðist reyndar voða skemmtilegt atvik aðfara nótt fimmtudagsins..það fór eitthvað dót úr vatnslögninni hjá okkur eða sprakk er ekki alveg viss hvað þetta var ;) en þegar þau voru að fara á fimmtudagsmorguninn þá var kjallarinn hjá okkur fullur af vatni….þannig morguninn byrjaði á því að þrífa, ekkert voðalega spennandi :/
En ég var veik þennan fimmtudag og fór því ekki í skólann, missti svo röddina á mánudeginum og var nánast raddlaus fram á miðvikudag…ekki uppáhaldið hjá mér :/
Svo núna um helgina var ég að vinna, horfði á fyrrihálfleik hjá Wigan - Man.Utd og ég var ekki sátt að þurfa að fara aftur að vinna því Wigan var yfir 1-0 :/
Svo eftir vinnu fór ég og horfði á einn leik í framhaldsskóla mótinu í fótbolta FNV-Laugar, það var fínt sko….Tók Köru með mér :P svo var bara kvöldið tekið rólega…Biggi, Egill og Veigar kíktu til mín áður en þeir fóru í sjallann…váá hvað ég hafði ekki séð Bigga og Veigar lengi ótrúlega gaman að hitta þá :D
Ég er nú búin að plana voðalega lítið ætla til pabba um næstu helgi ef ég þarf ekki að vinna, mjög líklegt samt að ég þurfi að vinna…svona eins og venjulega bara !
Svo þarf ég að fara að komast suður, langt síðan maður hefur farið þangað !
Svo bara vera dugleg að læra, próf á miðvikudaginn í Hreinlætis- og örverufræði þarf að læra vel fyrir það próf…búin að ganga ágætlega í öllum prófum hingað til, búin að taka 8 próf… yfir 8 í öllum nema 1, á reyndar eftir að fá út úr 2 prófum en ég er sátt :D
En ætli ég láti þetta ekki duga í bili, það fara kannski að koma myndir bráðum er allavega búin að setja allar myndirnar í tölvuna :D
En ég hef verið að velta því fyrir mér hvað eru draumar ? tilhvers dreymir manni ? er einhver tilgangur í þeim ? :O